Füchse Berlin: Dagur verður næsti þjálfari okkar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. desember 2008 15:47 Dagur Sigurðsson er næsti þjálfari Füchse Berlin. Mynd/HAGENpress/Leo Hagen
Dagur Sigurðsson mun af öllum líkindum verða næsti þjálfari þýska úrvalsdeildarfélagsins Füchse Berlin en þetta sagði framkvæmdarstjóri félagsins í samtali við Vísi í dag. „Það lítur út fyrir að hann muni taka við starfi þjálfara í sumar," sagði Bob Hanning, framkvæmdarstjóri Füchse Berlin, í samtali við Vísi í dag. „Það er ekki búið að skrifa undir samninginn enn en það verður líklega gert í þessari viku. En við höfum sammælst um þetta." Enn fremur sagði Hanning að Dagur myndi skrifa undir langan samning. „Ég tel að þetta verði langtímasamningur, ekki til tveggja eða þriggja ára heldur að minnsta kosti til sex ára." Hanning sagði að hann hafi verið á Íslandi fyrir stuttu og rætt þá við Dag. „Það kom mér þægilega á óvart að framtíðarsýn hans og framtíðarsýn okkar er nákvæmlega sú sama. Ég vildi fá þjálfara frá Norðurlöndunum og mann sem skilur íþróttina vel. Dagur var vitanlega leikstjórnandi og fyrirliði íslenska landsliðsins og passar okkur því mjög vel." „Hann skoðaði nokkra leiki okkar á myndbandi og þar kom hann strax auga á ýmislegt eins og maður sem væri búinn að þjálfa liðið undanfarin þrju ár." „Ég sagði honum að ég vildi fá hann. Þá sagði hann að hann þyrfti ekki að taka þessu starfi en að hann vildi það gjarnan. Það þótti mér mjög vænt um. Hann mun flytja hingað með fjölskyldu sinni og finnst mér það einnig mikilvægt." Füchse Berlin var nýliði í þýsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili eftir að hafa gengið í gegnum miklar fjárhagshremmingar. „Fyrir þremur og hálfu ári átti félagið engan pening og var ekki heldur með keppnisleyfi. Ég hef á þessum tíma þurft að margar ákvarðanir samkvæmt minni sannfæringu og vildi ég fá þjálfara eins og Dag. Þjálfara sem er hungraður og vill sinna starfinu eins vel og hann mögulega getur." Dagur hefur undanfarið gegnt starfi framkvæmdarstjóra Vals auk þess sem hann er landsliðsþjálfari austurríska karlalandsliðsins. „Dagur mun geta áfram sinnt starfi landsliðsþjálfara Austurríkis, að minnsta kosti fram yfir EM 2010," sagði Hanning enn fremur.
Mest lesið Gunnlaugur Árni á U.S. Open Golf Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Golf Rekin fyrir falsfrétt um að pabbi Messi væri dáinn Fótbolti Birtir myndband af því þegar fyrirliði KR brotnaði á báðum Íslenski boltinn Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Fótbolti Hakimi dreginn fyrir dóm: „Aldrei orðið mál ef ég væri ekki frægur“ Fótbolti Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Fótbolti Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Fótbolti Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Golf Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Handbolti Fleiri fréttir Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Sjá meira