Enski boltinn

Houllier hefur ekki áhuga

Elvar Geir Magnússon skrifar

Gerard Houllier er ekki á leið aftur í ensku úrvalsdeildina. Hann hefur verið orðaður við stjórastöðuna hjá Sunderland en segist ekki hafa áhuga á henni.

Hann starfar nú sem tæknilegur ráðgjafi franska knattspyrnusambandsins. „Nei ég hef ekki áhuga á þessu starfi. Það hefur heldur ekki verið haft beint samband við mig," sagði Houllier.

Sam Allardyce er enn talinn líklegastur til að verða næsti stjóri Sunderland.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×