Viðskipti innlent

Actavis selur eina af verksmiðjum sínum í Búlgaríu

Actavis skrifaði í morgun undir viljayfirlýsingu um sölu á einni af lyfjaverksmiðjum félagsins í Búlgaríu og gerir um leið framleiðslusamning við nýja eigendur.

Verksmiðjan í Razgrad er sú minnsta af þremur verksmiðjum Actavis í Búlgaríu. Kaupandi er Antibiotic-Razgrad AD, sem er félag í eigu núverandi stjórnenda verksmiðjunnar.

Í tilkynningu frá Actavis segir að sala verksmiðjunnar sé í samræmi við markmið félagsins um samþættingu framleiðslueininga. Á undanförnum misserum hefur Actavis jafnframt í auknum mæli gert framleiðslusamninga við aðra lyfjaframleiðendur, í þeim tilgangi að breikka lyfjaúrval félagsins enn frekar.

Söluverð verksmiðjunnar er ekki gefið upp. Gert er ráð fyrir að gengið verði endanlega frá sölunni innan tveggja mánaða.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×