Segir aðra öldu fjármálakreppunnar að skella á Íslandi 19. nóvember 2008 16:05
Viðskiptablaðið Financial Times (FT) segir að Ísland sé nú að undirbúa sig fyrir aðra öldu fjármálakreppunnar sem þegar hefur lagt bankakerfi landsins í rúst. Um er að ræða að hundruðir milljarða kr. munu flæða út úr landinu um leið og krónan fer á flot aftur. Um er að ræða erlenda eigendur íslenskra skulda- og ríkisbréfa sem bíða eftir fyrsta tækifærinu til að losa sig við bréf sín. Það kemur þegar krónan fer á flot aftur, væntanlega í næsta mánuði. Ekki er vitað nákvæmlega hver heildarupphæðin er sem reikna má með að streymi út úr landinu á fyrstu dögunum en samkvæmt FT áætlar Seðlabankinn að upphæðin nemi um 400 milljörðum kr.. Samkvæmt frásögn FT bíða erlendir fjárfestar þess í örvæntingu að geta lokað stöðum sínum í íslensku bréfunum en markaðurinn hefur verið lokaður frá því að bankakerfið hrundi í byrjun október s.l.. FT varar hinsvegar við áformum Seðlabankans um að ætla að nota lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og fleiri aðilum til að halda gengi krónunnar uppi meðan á fyrrgreindu útflæði stendur. Flot krónunnar er talið fyrsta skrefið í áttina að endurvekja trúverðugleika Íslands. "Hvernig Seðlabankanum tekst til við bréfasöluna verður mælikvarði á hæfileika bankans á tímum þar sem traust á honum hefur dalað verulega," segir í Financial Times.
Mest lesið Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Icelandair ræður þrjá nýja stjórnendur til starfa Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Sjá meira