Viðskipti innlent

Baugur að selja Julian Graves?

Julian Graves búðirnar eru um allt Bretland.
Julian Graves búðirnar eru um allt Bretland.

Breska blaðið Telegraph segir frá því í dag að Baugur hafi ákveðið að kalla inn sérfræðinga frá Deloitte til að meta Julian Graves heilsuvöruverlslanakeðjuna sem er í eigu fyrirtækisins. Blaðið segir að ákvörðunin veki upp spurningar um fjárhagslega stöðu Baugs og veltir því fyrir sér hvort standi til að selja keðjuna.

Þá er sagt að líklegast sé verið að undibúa sölu á keðjunni, sem hefur skilað tapi að undanförnu. Félagið er í fréttinni verðlagt á 20 til 50 milljónir punda. Talskona Baugs staðfestir við blaðamann Telegraph að matsmenn Deloitte hafi verið fengnir til að líta á fyrirtækið en hún sagði það alvanalegt að skoða einstök fyrirtæki í eignamöppu Baugs reglulega.

Baugur keypti Julian Graves árið 2003 fyrir 14 milljónir punda og í fyrra var 11,2 milljónum bætt við þegar keðjan var endurskipulögð. Ákveði Baugur að selja Julian Graves gerist það í kjölfarið á sölunni á MK One á dögunum en blaðið segir að sú sala hafi vakið áleitnar spurningar um fjárhagsstöðu Baugs.

Baugsmenn hafa hins vegar ávallt þvertekið fyrir að félagið eigi í vanda og benda á að eignamappan sé vel sett saman og ánægja sé með hvernig fyrirtækin standa sig, segir í Telegraph.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×