Viðskipti innlent

Upplýsingar um greiðslur til Íslands þegar þær fara um SÍ

Seðlabankinn.
Seðlabankinn.

Seðlabanki Íslands vill að gefnu tilefna útskýra hvernig greiðslur á milli landa eigi sér stað í þeim tilvikum þegar þær fara um Seðlabankann.

Tekið er dæmi af greiðslum frá Bretlandi til Íslands en útskýringin á við um hvaða mynt sem er og jafnt um greiðslur til og frá Íslandi.

,,Að tala um að greiðsla í erlendri mynt sé send til Íslands er að vissu leyti villandi. Greiðslur í GBP fara í raun aldrei út úr greiðslukerfum Bretlands. Sama á við um DKK og Danmörku, EUR og Evrulönd og svo framvegis. Það sem gerist er að greiðslan er lögð inn á reikning íslensks banka í breskum banka í Lundúnum. Á grundvelli upplýsinga um þessa innlögn greiðir íslenski bankinn endanlegum móttakanda.

Í dag fer þetta þannig fram að greiðslan er lögð inn á reikning Seðlabankans hjá National Westminster Bank. Þegar Seðlabankinn fær upplýsingar um greiðsluna, greiðir hann viðskiptabanka móttakandans og sendir upplýsingarnar áfram til hans. Viðskiptabankinn greiðir síðan endanlega inn á reikning móttakanda.

Þar sem Seðlabankinn er aukamilliliður í þessu tilviki getur reynst snúið að framkvæma greiðslur til Íslands í gegnum netbanka og höfum við nokkur dæmi þess að þetta hafi valdið vandkvæðum og seinkum greiðslna. Við mælum því eindregið með því að ef einhver vafi leikur á um hvernig fylla á út umsókn á netinu þá hafi greiðandinn frekar beint samband við sinn banka og óski eftir millifærslunni á gamla mátann.

Það hefur brugðið við að greiðslur eru lagðar inn á reikninga Seðlabankans, en Seðlabankinn ekki fengið neinar upplýsingar um greiðsluna aðrar en fjárhæðina á daglegum yfirlitum. Þetta hefur orðið til þess að tefja afgreiðslu. Til að auka líkurnar á því að Seðlabankinn fái tímanlegar og réttar upplýsingar er best að greiðandinn biðji sinn banka um að greiðslan sé send sem „International Customer Transfer", og að Seðlabankinn fái sent svo kallað SWIFT MT103-skeyti. Ef það er gert er tryggt að hægt verði að afgreiða til viðskiptabankans sama dag og Seðlabankinn fær greiðsluna," segir í tilkynningu frá Seðlabankanum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×