John Terry mun ná sér 22. maí 2008 12:07 John Terry brotnaði niður eftir tapið í gær AFP
Félagar John Terry í enska landsliðinu eru á því að varnarmaðurinn muni ná sér eftir áfallið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í gær þar sem hann klúðraði vítaspyrnu sem hefði geta fært Chelsea Evrópumeistaratitilinn. Það var Cristiano Ronaldo sem varð fyrsti maðurinn til að misnota spyrnu í vítakeppninni í gær og það kom í hlut Terry að taka fimmtu spyrnu Chelsea. Hann rann á blautu grasinu og skaut boltanum í stöngina. Það var svo Nicolas Anelka sem færði United titilinn með því að láta Edwin van der Sar verja frá sér í bráðabananum. Frank Lampard segist þess fullviss að Terry muni ná sér eftir áfallið í gær, enda sé hann sterkur einstaklingur. "Þetta er mjög erfitt og ég veit hvernig honum líður. Það er ekki margt sem þú getur sagt við menn sem lenda í þessu. Ég sagði honum að gleyma því ekki að þetta væri bara fótbolti. Hann var nógu sterkur til að gangast við að taka spyrnuna, en honum er væntanlega lítil huggun í að heyra neitt svoleiðis núna. Hann rann þegar hann tók spyrnuna, en það breytir engu fyrir mig. John er samt fyrsti maðurinn sem ég vil hafa við hlið mér á knattspyrnuvellinum," sagði Lampard. Rio Ferdinand hjá Manchester United og félagi Terry í enska landsliðinu, fann líka til með félaga sínum. "Auðvitað er ég ánægður að við höfum unnið, en það er alltaf erfitt að hugsa til hins liðsins. John er góður vinur minn og maður vill ekki sjá neinn klikka svona á víti. Einhver varð hinsvegar að tapa vítakeppninni og sem betur fer voru það þeir," sagði Ferdinand.
Enski boltinn Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Golf Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real Fótbolti Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Enski boltinn „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ Fótbolti Fleiri fréttir Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar Sjá meira