Viðskipti innlent

Exista stefnir á Íslandsmet í tapi

Tap Exista á árinu 2008 gæti orðið allt að 400 milljarðar króna. Það væri nýtt Íslandsmet en fyrra met á FL sem í fyrra tapaði 67 milljörðum króna.

Exista er í gríðarlegum fjárhaghvandræðum eftir að hafa þurft að selja hluti sína í fjölmörgum fyrirtækjum sínum á brunaútsölu. Til að mynda hefur félagið tapað 217 milljörðum á finnska tryggingafélaginu Sampo, Storebrand var selt á um 70 lægra verði en það var metið á í vor og 123 milljarðar töpuðust þegar Kaupþing fór í þrot en Exista átti 25 prósent í bankanum.

Þá keypti Exista ásamt Chris Ronnie, 29 prósenta hlut í fyrirtækinu JJB sport en Lýður Guðmundsson stjórnarformaður Existu hefur sagt að hluturinn hafi verið keyptur á allt of háu verði en 12 milljarðar voru greiddir fyrir hlutinn.

Lýður segir að stærstu mistök Exista til þessa hafi verið þau að hafa ekki beitt sér fyrir því á sínum tíma að Kaupþing yrði flutt úr landi á sínum tíma þegar bankanum var neitað um að gera upp í evrum.

Stjórn Existu seldi í október í allan hlut félagsins í Bakkavör Group fyrir 8,4 milljarða króna til ELL182 ehf, félags í eigu Bakkabræðra. Um er að ræða 40 prósent af heildarhlutaféi en eftir viðskiptin á Exista eða dótturfélög þess enga hluti í Bakkavör.

Lýður segir að eigið fé Exista hafi verið um 400 milljarðar í lok september. Ákveðið hefur verið að afskrá Exista úr Kauphöll en eigendur útiloka ekki að það verði einhvern tíma skráð aftur, verði það enn á lífi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×