Reiður Brown hótar breytingum í janúar 26. desember 2008 19:56 AFP
Phil Brown stjóri Hull hefur hótað því að gera breytingar á leikmannahóp sínum í janúar eftir að þeir hlutu skelfilega útreið gegn Manchester City í dag. City var búið að vera í vandræðum í undanförnum leikjum rétt eins og Hull, en aðeins eitt lið var á vellinum fyrir hlé þegar City náði 4-0 forystu og vann að lokum öruggan 5-1 sigur. Það vakti mikla athygli á Englandi í dag þegar Phil Brown ákvað að safna leikmönnum sínum saman á vellinum fyrir framan stuðningsmenn Hull og húðskamma þá eftir að flautað hafði verið til hálfleiks. Honum var greinilega ekki runnin reiðin þegar Sky náði tali af honum eftir leikinn. "Þetta var alls ekki nógu gott. Við vissum að City væri í smá krísu og því vildum við skora snemma, en þess í stað voru það þeir sem komust yfir og létu svo kné fylgja kviði. Þeir eru með gott lið en það er alveg óásættanlegt að vera 4-0 undir í hálfleik. Við létum leikmennina heyra það í dag og þeir áttu það skilið. Eitt og annað var sagt sem þurfti að segja. Fólk hefur talað um að City geti ekki beðið eftir að félagaskiptaglugginn opnist í janúar, en kannski má frekar segja það um okkur," sagði Brown."Það er ekki langt í fallbaráttu hjá okkur, það er svo einfalt og svo verða menn að hugsa til þeirra 4,000 áhorfenda sem skipulögðu þetta ferðalag til að fylgja okkur á öðrum degi jóla," sagði Brown. Smelltu hér til að sjá myndbrot frá BBC þar sem Brown skammar sína menn í hálfleik.
Enski boltinn Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Fleiri fréttir Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Sjá meira