Dræm þátttaka í útboði ríkisbréfa Óli Kristján Ármannsson skrifar 11. desember 2008 04:00 Jón Bjarki Bentsson
Tilboðum að upphæð 11,5 milljörðum króna að nafnverði var tekið í útboði á nýjum flokki ríkisbréfa sem fram fór í gærdag hjá Seðlabanka Íslands. Fyrirfram var búist við meiri þátttöku. Þátttakan nú er heldur minni en í sambærilegu útboði sem fram fór í síðustu viku þar sem seldust ríflega 15 milljarðar. Útboðunum var meðal annars ætlað að mæta innlausn á öðrum ríkisbréfaflokknum, en greiðslu og uppgjörsdagur þeirra er á morgun. Ríkið þarf þá að greiða út nálægt 74 milljörðum króna. „Jafndræm þátttaka hlýtur að vera ákveðið áhyggjuefni fyrir ríkisstjórnina og Seðlabankann," segir Jón Bjarki Bentsson, sérfræðingur Greiningar Glitnis. „Einn megintilgangur þessa útboðs var að bjóða þeim sem eiga ríkisbréf á gjalddaga á föstudaginn kost á að framlengja í þeim stöðum." Hann segir jafnframt talið að meirihluti eigenda ríkisbréfaflokksins sem þá verði gerður upp sé útlendingar. Þá bendir hann á að samanlögð kaup í nýafstöðnum ríkisbréfaútboðum ríkisins nemi aðeins 26 til 27 milljörðum króna, á móti um það bil hundrað milljörðum á gjalddaga á morgun. „Mismuninn þarf ríkissjóður að greiða út," segir hann. Um leið sé ekki vitað hvað erlendir eigendur þessara peninga ætli að gera við þá, því utan vaxtagreiðslna séu þeir í raun fastir í landinu. „Þeir hljóta að fara á einhvers konar innistæður í bili og verður forvitnilegt að sjá hvað verður í framhaldinu."
Mest lesið Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Neytendur Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Fjölga verslunum í Danaveldinu Neytendur Fleiri fréttir Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Sjá meira