Viðskipti erlent

Norræni fjárfestingabankinn setur á laggirnar ráðgjafahóp

Norræni fjárfestingabankinn, NIB, hefur sett á laggirnar óformlegan ráðgjafahóp með það að markmiði að nýta sér þekkingu og reynslu sem til staðar er í alþjóðlegu viðskiptalífi. Sjö sérfræðingar skipa hópinn og eru þeir allir með mikla reynslu á sviðum sem skipta miklu fyrir bankann. Ráðgjafahópurinn mun leggja til nýjar hugmyndir og tillögur að þróun viðskiptasviðs NIB.

Fulltrúar í hópnum, eru einstaklingar með mikla reynslu á sínu sviði og munu þeir leggja fram hugmyndir og tillögur til stjórnar NIB. Tillögurnar munu taka á málum sem eru mikilvæg fyrir áframhaldandi þróun í starfsemi bankans. Sérfræðingahópurinn mun ekki taka ákvarðanir, heldur verða ráðgjafavettvangur. Hópurinn mun funda tvisvar til þrisvar á ári. Þetta segir í fréttatilkynningu frá Norðurlöndum í dag.

„Undanfarin ár hefur NIB breytt starfsemi sinni til að aðlagast breytingum í hnattvæddum heimi. Jafnvel þó að bankinn sé vel í stakk búinn til að takast á við þessar áskoranir, er það mjög mikilvægt að fylgjast með þróuninni og bregðast við stöðugum breytingum með ákvörðunum sem byggja á góðri sérfræðingaráðgjöf. Með því að fá mat utan að komandi ráðgjafa munum við auka breiddina í stefnumarkandi starfsemi NIB. Ég er þess fullviss að nýi ráðgjafahópurinn muni reynast vel og að hann muni styrkja og efla stjórn NIB", segir Johnny Åkerholm starfandi forstjóri NIB.

Í ráðgjafahópnum eru:

Paul Bulteel, fyrrum framkvæmdastjóri Eurelectric, samtaka raforkufyrirtækja, frá Belgíu.

Björn Carlson, stofnandi Björn Carlsons Eystrasaltsstofnunarinnar frá Svíþjóð.

Jannik Lindbaek, fyrrum stjórnandi meðal annars NIB og IFC og formaður meðal annars Statoil frá Noregi.

Bodil Nyboe Andersen, fyrrum forstjóri Seðlabanka Danmerkur, frá Danmörku.

Michael Sohlman, starfandi framkvæmdastjóri Nóbelstofnunarinnar, frá Svíþjóð.

Christoffer Taxell, sem er reyndur stjórnandi í viðskiptalífinu og einnig í stjórnmálum, skrifstofustjóri hjá Åbo Akademi, frá Finnlandi.

Linnar Viik, netsérfræðingur í fararbroddi og meðal annars fyrrum ráðgjafi ríkisstjórnarinnar í Eistlandi.

NIB er fjölþjóðleg fjármálastofnun í eigu átta landa: Danmerkur, Eistlands, Finnlands, Íslands, Lettlands, Litháen, Noregs og Svíþjóðar. Bankinn fjármagnar einkarekin og opinber verkefni í og utan aðildarríkjanna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×