Heildarendurskoðun banka í gangi Óli Kristján Ármannsson skrifar 22. nóvember 2008 06:00 Álfheiður Ingadóttir í beinir spurningum til Björgvins G. Sigurðssonar í gær. MYND/Fréttablaðið/Vilhelms
Viðskiptaráðherra hefur skipað nefnd um heildarendurskoðun á bankamarkaði. Þetta kom fram í umræðum utan dagskrár á Alþingi í gærmorgun. Meðal annars skoðar nefndin reglur um viðskipti starfsmanna við fjármálafyrirtæki, veðsetning hluta í fjármálafyrirtækjum, eignarhald, stórar áhættuskuldbindingar og krosseignatengsl. Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri-grænna, var málshefjandi í umræðunum og beindi spurningum til Björgvins G. Sigurðssonar, viðskiptaráðherra. Hún sagði allt óljóst varðandi stefnu og fyrirætlan stjórnvalda hvað bankana varðaði og taldi spurningar hafa vaknað um getu þeirra til að sinna þjónustu við fólk og fyrirtæki. Álfheiður benti á yfirlýsta fyrirætlan stjórnvalda um að einkavæða bankana jafnskjótt og auðið væri og kvaðst vara við öllum flýti í þeim efnum, líta bæri til reynslu Svía og Norðmanna þar sem ríkið sé eigandi á bankamarkaði. Björgvin G . Sigurðsson segirst telja bankana vel í stakk búna til að sinna einstaklingum og fyrirtækjum í landinu, en í byrjun næsta árs verði lokið endurskoðun á eignastöðu þeirra. Hann telur jafnframt vert að skoða í fullri alvöru aðkomu erlendra aðila að bönkunum. „Ég þó áherslu á að ekkert hefur verið ákveðið í þá veru þó rætt hafi verið við kröfuhafa um slíka aðkomu. Við það eru bæði kostir og ágallar." Björgvin segist jafnframt áður hafa lýst þeirri skoðun að ríkið haldi heinhverjum hlut bönkunum þegar losað verði um þá hluti síðar. „En auðvitað verður að standa allt öðru vísi að einkavæðingu á bönkunum en gert var síðast," segir hann, en jafnframt kom fram í máli Björgvins að hann efaðist um gildi þess að sameina bankana og minnti í þeim efnum á að samkeppnisstofnun hafi áður lagst gegn sameiningu Landsbankans og Búnaðarbankans. Þá segir hann starfshóp að störfum vegna vanda minni fjármálafyrirtækja. „Við vonumst til að lokið sér þrotahrinu fjármálafyrirtækja hér."
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira