Viðskipti innlent

Breyttu nafninu í MP Banki hf. og taka við innlánum

Í tilefni af breyttu starfsleyfi MP Fjárfestingabanka var samþykkt á hluthafafundi þann 14. Nóvember s.l. að breyta nafni bankans í MP Banki hf. Erlent heiti er MP Bank hf.

Í tilkynningu um málið segir að engar verulegar breytingar eru fyrirhugaðar á starfsemi MP Banka hf. á næstunni að öðru leyti en því að bankinn tekur nú við innlánum frá viðskiptavinum.

Innlán hjá MP Banka hf. njóta sömu tryggingar og innlán hjá öðrum viðskiptabönkum og sparisjóðum á Íslandi. Um tryggingu innlána vísast til yfirlýsingar Ríkisstjórnar Íslands frá 6. október s.l.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×