SPRON borgar út úr Peningamarkaðssjóði 11. nóvember 2008 16:39 Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON.
SPRON hefur lokið við yfirferð og útreikninga á eignum Peningamarkaðssjóðsins. Útgreiðsluhlutfall sjóðsins er 85,52% og miðast við lokagengi þann þriðja október að því er segir í tilkynningu frá sparisjóðnum. Um heildargreiðslu er að ræða og verður greitt úr sjóðnum þann 17. nóvember 2008. „Útborgun úr sjóðnum verður lögð inn á innlánsreikning sem stofnaður hefur verið á nafni sjóðsfélaga," segir í tilkynningu SPRON. „Útborgunin svarar til eignarhlutfalls hvers sjóðfélaga í sjóðnum þann 3. október síðastliðinn. Allir sjóðsfélagar sem fá greitt úr Peningamarkaðssjóði SPRON bjóðast bestu kjör á nýjum innlánsreikningum til lok árs 2009. Nánari upplýsingar um útgreiðslu til sjóðsfélaga, innlánsreikninginn sem upphæðin verður lögð inn á og kjörin sem í boði eru verða send sjóðsfélögum í pósti." Þá segir að SPRON harmi þá eignarýrnun sem orðið hafi. „Í kjölfar hruns viðskiptabankanna þriggja í byrjun október beindi Fjármálaeftirlitið þeim tilmælum til rekstrarfélaga verðbréfasjóða að peningamarkaðssjóðum yrði slitið og að ekki yrði opnað aftur fyrir innlausnir heldur yrði eign sjóðsfélaga greidd inn á innlánsreikning sjóðsfélaga. Sú ráðstöfun var gerð til þess að gæta jafnræðis milli sjóðsfélaga og með hagsmuni þeirra að leiðarljósi. SPRON hefur unnið að því á síðustu vikum að hámarka verðmæti þeirra eigna sem voru í sjóðnum. SPRON harmar þá eignarýrnun sem orðið hefur og þau óþægindi sem þeir hafa orðið fyrir vegna lokunar sjóðsins." Þá segir að SPRON þakki viðskiptavinum ennfremur þolinmæðina sem þeir hafi sýnt starfsmönnum undanfarnar vikur. Enn er lokað fyrir eftirtalda sjóði og verður tilkynnt um opnun þeirra síðar: Langur skuldabréfasjóður Stuttur skuldabréfasjóður Íslenskur skuldabréfasjóður Stýrður hlutabréfasjóður
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira