Lífeyrissjóðirnir standa sterkt þrátt fyrir áföll að undanförnu 11. nóvember 2008 11:57
Þrátt fyrir að tap flestra lífeyrissjóðanna af verðbréfum banka og fjárfestingarfélaga verði verulegt mun íslenska kerfið væntanlega enn verða eitt þeirra öflugustu á heimsvísu. Staða íslenska lífeyrissjóðakerfisins var býsna sterk í þann mund sem fjármála- og gjaldeyriskreppan skall á landinu af fullum þunga. Greining Glitins fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar kemur fram að hrein eign lífeyrissjóðanna til greiðslu lífeyris var 1.838 milljarðar kr. í lok september samkvæmt nýbirtum tölum Seðlabankans. Hafði sú upphæð hækkað um 10,5% frá sama tíma í fyrra að krónutölu, en að raunvirði rýrnaði hrein eign hins vegar um 3% á tímabilinu. Þótt lífeyrissjóðirnir hafi flestir orðið fyrir þungu höggi í október er staða Íslendinga í lífeyrismálum enn býsna góð í alþjóðlegum samanburði. Hrein eign sjóðakerfisins í septemberlok nam 140% af vergri landsframleiðslu (VLF) síðasta árs, sem er með því mesta sem gerist meðal þróaðra ríkja. Erfitt er að meta hversu mikið eignir sjóðanna hafa rýrnað á undanförnum vikum, en gróft áætlað má gera ráð fyrir að eignarýrnunin nemi á bilinu 15 - 20%. Eftir sem áður munu eignir lífeyrisjóðanna nema u.þ.b. VLF þessa árs, og jafnvel heldur meira. Aðeins Holland og Sviss geta státað af svo digrum sjóðum til greiðslu lífeyris borgaranna, þótt Noregur hafi raunar sinn olíusjóð sem gegna á svipuðu hlutverki þegar fram í sækir. Lætur nærri að eignir íslenskra lífeyrissjóða verði 5 milljónir króna á hvern Íslending. Hreint innflæði, þ.e. iðgjaldagreiðslur umfram lífeyrisgreiðslur, er einnig verulegt og verður svo áfram næstu árin vegna tiltölulega ungs meðalaldurs þjóðarinnar. Að því gefnu að hagkerfið rétti úr kútnum á nýjum áratug munu lífeyrissjóðirnir væntanlega ná aftur fyrri styrk og jafnvel eflast enn frekar til lengri tíma litið.
Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf María Klara til Athygli Viðskipti innlent Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Fleiri fréttir María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Sjá meira