LSR tapar 30 milljörðum kr. beint vegna fjármálakreppunnar 11. nóvember 2008 17:04
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) hefur ekki farið varhluta af fjármálakreppunni fremur en aðrir lífeyrissjóðir landsins. Haukur Hafsteinsson framkvæmdastjóri telur að beint tap LSR vegna hruns bankanna sé rúmlega 30 milljarðar kr. eða um 10% af eignum sjóðsins. „Þarna erum við að horfa á hlutabréf og víkjandi skuldabréf í bönkunum en hvað varðar eign okkar í skuldabréfum fyrirtækja viljum við bíða og sjá hvernig málin þróast áður en við gefum upp tölur um tapið," segir Haukur. Tap LSR á fjármálakreppunni á Íslandi mun ekki hafa sjálfkrafa áhrif á lífeyrisjóðsgreiðslur til meðlima sjóðsins. „Réttindin eru lögbundin og þeim verður ekki breytt nema alþingi breyti lögunum," segir Haukur. Réttindi meðlima LSR breytast því ekki sjálfkrafa í takt við breytingará eignum sjóðsins. Haukur bendir á að réttindin voru ekki aukin þegar vel gekk með fjárfestingar sjóðsins síðustu árin áður en fjármálakerfi landsins hrundi. LSR hefur fjárfest mikið í erlendum hlutabréfum eða fyrir um 27% af heildinni. Nam upphæðin samkvæmt ársskýrslu síðasta árs rúmum 81 milljarði kr. Haukur segir að erfitt sé að meta tapið vegna lækkunar á erlendum hlutabréfavísitölum þar sem veikt gengi krónunnar hafi vegið þar upp á móti.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira