Nauðsynlegt að bæta Lárusi skaða af flutningi milli starfa 20. febrúar 2008 16:14
Nauðsynlegt var að bæta Lárusi Welding, forstjóra Glitnis, þann fjárhagslega skaða sem hann hefði ella orðið fyrir við að færa sig til bankans frá Landsbankanum í London. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá stjórn Glitnis vegna spurninga Vilhjálms Bjarnasonar, hluthafa í bankanum og framkvæmastjóra Samtaka fjárfesta. Starfslokasamningur Bjarna Ármannssonar og ráðningarsamningur Lárusar Welding hafa verið gagnrýndir og hefur komið fram að Lárus fékk 300 milljónir króna fyrir að taka að sér forstjórastöðuna í stað Bjarna. Í tilkynningu frá Glitni vegna málsins segir að þegar Bjarni Ármannsson lét af störfum hafi verið ljóst að vandasamt yrði að fylla skarð hans. Lárus Welding hafi orðið fyrir valinu en hann starfaði þá sem framkvæmdastjóri Landsbankans í London. „Lárus hafði á þeim tíma áunnið sér ákveðin starfskjör og réttindi sem hann lét af hendi þegar hann skipti um starfsvettvang. Við ráðningu hans var nauðsynlegt að bæta honum þann fjárhagslega skaða sem hann ella hefði orðið fyrir við starfsskiptin," segir í yfirlýsingunni. Þar er einnig lýst yfir ánægju með störf Lárusar fyrir Glitni. Þá segir stjórn Glitnis um starfslokasamning Bjarna Ármannssonar, fyrrverandi forstjóra, að henni hafi verið veitt heimild á aðalfundi í fyrra að kaupa eigin hluti upp að 10 prósenta mörkum sem heimil séu samkvæmt hlutafélagalögum. Kaupverð hluta skyldi í slíkum tilvikum vera lægst 10 prósentum lægra og hæst 10 prósentum hærra en skráð kaup- eða sölugengi í Kauphöll Íslands á hverjum tíma. Þessi heimild sé í fullu samræmi við ákvæði 55. greinar hlutafélagalaga um þetta efni. Samningurinn við Bjarna hafi verið innan þessara vikmarka og þar með innan umboðs stjórnar Glitnis.Um kaupréttarsamninga við aðra starfsmenn Glitnis segir stjórnin að í samræmi við starfskjarastefnu Glitnis hafi stjórnin samþykkt þann 30. maí kaupréttarstefnu vegna þess sem eftir lifði ársins 2007 og ársins 2008. „Samkvæmt henni er heimilt að gera kaupréttarsamninga fyrir allt að 550 milljón hlutum við lykilstarfsmenn í bankanum. Kaupréttarverðið við gerð kaupréttarsamninga á þeim tíma var kr. 27,5 sem var verð hluta í Glitni banka hf. á þeim degi. Gerð kaupréttarsamninga við starfsmenn er í samræmi við það sem þekkist hjá öðrum fjármálafyrirtækjum hérlendis og erlendis.Ljóst er að ávinningur kaupréttarhafa er háður því að gengi bankans hækki og verðmunur myndist á markaðsgengi hlutabréfa í bankanum og gengi kaupréttar. Þannig hefur starfsfólk með kauprétti hvata að því að vinna að því að auka hagnað félagsins og hámarka hag hluthafa.Hafa ber í huga að raunkostnaður fellur ekki til vegna slíkra samninga nema hlutabréf hafi hækkað umfram viðmiðunargengi og hluthafar þar af leiðandi notið verðhækkunar á bréfum sínum. Ljóst er að til þess að bankinn verði fyrir raunkostnaði vegna samninga sem gefnir voru út árið 2007, í samræmi við kaupréttarstefnu, þarf gengi félagsins að hækka um 40-50% frá núverandi markaðsgengi," segir í tilkynningu stjórnar Glitnis.
Mest lesið Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira