Hvað hefur þessi Beckham gert? 14. febrúar 2008 10:56
Dálkahöfundurinn T.J. Timers hjá LA Times lætur knattspyrnumanninn David Beckham hafa það óþvegið í pistli sínum í blaðinu í dag. Hann segir körfuboltamanninn Kwame Brown hjá LA Lakers hafa skilið meira eftir sig í Los Angeles en Beckham. Simers rekur það í pistli sínum hvernig hann sé búinn að reyna að fá viðtal við David Beckham alla 213 dagana sem knattspyrnumaðurinn hefur dvalið í Los Angeles, en án árangurs. Hann veltir því fyrir sér hvernig geti verið að maður sem hefur aðeins spilað átta leiki fyrir LA Galaxy geti verið jafn "þreyttur og önnum kafinn" eins og talsmenn hans bera við þegar á að reyna að fá viðtal við hann. Simers segist ekki hissa á því að Beckham hafi ekki verið valinn í enska landsliðið þegar hann hafi ekki orku í að sitja eitt viðtal við LA Times - viðtal sem hann sé margbúinn að lofa en hafi alltaf svikið. Pistlahöfundur veltir því fyrir sér hvernig Beckham hafi þá haft orku í að dansa við Janet Jackson á Grammy-verðlaunateiti á dögunum og hvort geti verið að hann hafi verið við tökur á "Father-Hood" þáttunum með Snoop Dogg um daginn þegar hann lofaði sig í viðtal á mánudegi - sem síðar var aflýst. Samt hafi hann fundið tíma til að veita Hollywood leikkonunni Selmu Hayek viðtal á góðgerðasamkomu sem haldin var á vegum Madonnu - en reyndar hafi hann fengið 350,000 dollara fyrir viðvikið. Beckham hafi líka haft tíma til að fá sér nýtt tattú á vinstri handlegginn - berbrjósta engil sem hann segi vera Victoriu konu sína - fyrir 5,000 dollara. Simers gefur lítið út á fullyrðingar manna við komu Beckham til LA - að hann hafi átt að vera maðurinn sem bjarga átti amerískri knattspyrnu. Beckham hafi gert minna af því að spila og það eina sem hann sé með í gangi núna sé nærbuxnaauglýsingin hans fræga. Simers þykir reyndar skrítið að svona efnaður maður eins og Beckham virðist ekki hafa efni á nærbuxum í réttri stærð - þær sem hann klæðist í auglýsingunni séu full þröngar fyrir sinn smekk. Nei, Beckham er ekki merkilegur pappír að mati pistlahöfundarins. Hann hafi meiri áhyggjur af almannatengslaher sínum en þeim sem borga honum laun. Beckham, segir Simers, hefur ekki skilið meira eftir sig en miðherjinn Kwame Brown sem skipt var frá LA Lakers á dögunum, en áhorfendur í Staples Center bauluðu á Brown í síðustu leikjum sínum fyrir Lakers og olli hann þeim gríðarlegum vonbrigðum. "David hefði nú geta bætt upp fyrir allan þennan tíma í meiðslum með því að veita a.m.k. nokkur viðtöl, en svo virðist sem hann sé ekki beittasta verkfærið í skúffunni og því vilji konan hans sjá um að tala fyrir hann - vilji ekki skilja hann eftir einan hjá blaðamönnum," veltir Simers fyrir sér í niðurlagi pistilsins. "Gott og vel - leyfið mér þá að taka viðtal við Posh."
Fótbolti Mest lesið Tekur ekki við afsökunarbeiðninni og segir hann ljúga Fótbolti „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport Jón Þór: „Ég er algjörlega orðlaus“ Íslenski boltinn Rúnar: Ég hef aldrei farið á Þjóðhátíð Íslenski boltinn Björgvin Karl vann sitt þriðja brons á heimsleikunum Sport Hljóðlátu mótmælin munu ekki fara fram hjá neinum Fótbolti Endurkomur hjá kærustuparinu: „Þakklát og hamingjusöm“ Sport Kláraði Harvard og samdi við Blika Íslenski boltinn Jóhannes Karl: Strákarnir eiga skilið frí yfir helgina Íslenski boltinn „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Fleiri fréttir Sjáðu Sveindísi skora í öðrum leiknum í röð Hljóðlátu mótmælin munu ekki fara fram hjá neinum 59 ára fótboltagoðsögn skoraði eftir 1351 markalausa daga Rúnar: Ég hef aldrei farið á Þjóðhátíð Jón Þór: „Ég er algjörlega orðlaus“ Jóhannes Karl: Strákarnir eiga skilið frí yfir helgina Uppgjörið: ÍA-Stjarnan 5-1 | Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs Uppgjörið: FH-Fram 0-0 | Mörg mörk síðast en ekkert í kvöld Arnór Gauti frá Blikum og í króatísku deildina Tekur ekki við afsökunarbeiðninni og segir hann ljúga Kvenkyns dómari slasaðist í slagsmálum í vináttuleik Kláraði Harvard og samdi við Blika Elfsborg vann Malmö eftir stoðsendingu Júlíusar Bakvörður skoraði tvö gegn Ísaki Snæ í Kaupmannahöfn Drengjalið Vals vann Dana Cup Kolbeinn hafði betur gegn Íslendingaliði Brann Kolbeinn og Hjörtur töpuðu gegn toppliðinu Elías Rafn vann Íslendingaslaginn í Danmörku Haaland kyndir undir Haaland-æði á samfélagsmiðlum Juventus vill fá tvo leikmenn til að bæta sóknina Ítalía endurhugsar að ráða Pirlo vegna tengsla við Rússland Nýja lið Dags Dan fagnaði sigri Sigur í fyrsta leik Iraola hjá Liverpool Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Barcelona mun styðja fjölskyldu verkamanns sem lést á Nývangi Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Sjá meira