Hálf öld liðin frá flugslysinu í München Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. febrúar 2008 10:22 Veggmynd á Old Trafford sem heiðrar minningu þeirra leikmanna sem fórust í München árið 1958. Smelltu á myndina til að sjá stærri útgáfu. Nordic Photos / Getty Images
Í dag eru liðin 50 ár síðan að 23 manns fórust í flugslysi rétt utan München í Þýskalandi en þar af voru átta leikmenn Manchester United. Í dag klukkan 15.04 verður mínútuþögn bæði á Old Trafford, heimavelli Manchester United, og á vettvangi slyssins. Í kvöld verður einnig mínútuþögn fyrir landsleik Englands og Sviss á Wembley-leikvanginum. Sir Bobby Charlton, Albert Scanlon, Harry Gregg, Bill Foulkes og Kenny Morgans eru fyrrum leikmenn United sem voru með í fluginu en lifðu slysið af. Þeir verða allir viðstaddir athöfnina á Old Trafford í dag. Þá verður einnig mínútuþögn fyrir leik Manchester United og Manchester City í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn kemur. „Ég er viss um að stuðningsmenn og áhorfendur munu virða þessar mínútuþagnir," sagði Rio Ferdinand, leikmaður Manchester United. „Þetta verður áhrifarík og átakanleg stund og eigum við marga frábæra stuðningsmenn hér á Englandi." „Þetta snýst ekki bara um Manchester United heldur einnig enska knattspyrnu." Við athöfnina á Old Trafford í dag verður afhjúpað sérstakt minnismerki um „Busby Babes" í göngunum í suðurstúkunni á leikvanginum sem verður eftir það þekkt sem München-göngin. „Busby Babes" var viðurnefnið sem leikmenn Manchester United fengu á þessum tíma en margir leikmannanna þóttu vera með þeim betri á Englandi. Þó enginn betri en Duncan Edwards, einn þeirra sem lést. Hann var aðeins 21 árs gamall en margir hafa sagt síðan þá að hann hefði án efa orðið besti knattspyrnumaður heims hefði hann lifað og spilað knattspyrnu áfram.
Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Sjá meira