Ísland með öruggt sæti í milliriðlinum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. janúar 2008 11:19 Róbert Gunnarsson fagnar marki í leiknum gegn Slóvakíu í gær. Nordic Photos / AFP
Íslenska handboltalandsliðið er með öruggt sæti í milliriðlakeppninni eftir að Frakkar unnu Svía á EM í handbolta í gær. Ef Svíþjóð vinnur Slóvakíu í dag er ljóst að Slóvakar sitja eftir með núll stig í riðlinum en þrjú af fjórum liðum fara áfram í milliriðlakeppnina. Slóvakar þurfa því að vinna Svía í dag en ekkert minna en sex marka sigur dugar til. Það miðast einnig við að Ísland tapi fyrir Frakklandi í dag. En hvort sem Slóvakía vinnur Svíþjóð með minna eða meira en sex marka mun fer Ísland áfram í milliriðlakeppnina með annarri hvorri þjóðinni. Niðurröðun liðanna ræðst af árangri í innbyrðisviðureignum ef liðin þrjú - Ísland, Slóvakía og Svíþjóð - fá öll tvö stig í riðlakeppninni. Ísland er með eitt mark í plús í markatölu í þeim samanburði. Sem stendur er Slóvakía með sex mörk í mínus og Svíþjóð fimm mörk í plús. Vinni Slóvakía með sex mörkum í dag situr Svíþjóð eftir með eitt mark í mínus en Slóvakía verður þá með jafna markatölu. Vinni Slóvakía með fimm mörkum sitja Slóvakar eftir með eitt mark í mínus en Svíþjóð verður þá með jafna markatölu. Hvernig sem er verður Ísland alltaf með eitt mark í plús og því með betri árangur en bæði þessi lið. Ef Slóvakar komast áfram í milliriðlakeppnina fer Ísland með tvö stig með sér í milliriðilinn en Slóvakar ekkert. Ef Svíar komast áfram í milliriðlakeppnina fer Svíþjóð með tvö stig með sér í milliriðilinn en Ísland ekkert. Allt þetta miðast auðvitað við að Ísland tapi fyrir Frakklandi í dag. Ef Ísland vinnur Frakkland dugar Slóvökum eins marks sigur á Svíum til að komast áfram.
Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Sport Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Körfubolti Hlustaði ekki á liðið og baðst afsökunar Formúla 1 Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Fleiri fréttir Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Sjá meira