Hef lengi beðið eftir að komast til Bolton 16. janúar 2008 15:54
Grétar Rafn Steinsson hefur nú loksins verið kynntur formlega til sögunnar sem nýr leikmaður Bolton. Grétar lýsti yfir ánægju sinni með vistaskiptin í viðtali á heimasíðu félagsins nú síðdegis. Grétar var keyptur frá hollenska liðinu AZ Alkmaar fyrir tæpar 450 milljónir króna, sem er eitt hæsta verð sem félagið hefur greitt fyrir varnarmann. "Ég kom hingað til reynslu fyrir fimm og hálfu ári síðan og kannast því við nokkra af leikmönnum liðsins. Ég er mjög ánægður með að vera loksins kominn hingað því ég var ósáttur við að fá ekki samning hérna á sínum tíma. Ég er búinn að bíða lengi - en nú er biðin loksins á enda," sagði Grétar á heimasíðu Bolton. Hann segir Guðna Bergsson hafa átt stóran þátt í því að hann ákvað að fara til Bolton. "Guðni vildi að ég færi hingað og sagði mér góða hluti um Sam Allardyce. Ég talaði líka við fyrrum leikmenn félagsins eins og Arnar Gunnlaugsson og Eið Smára Guðjohnsen og þeir sögðu mér góða hluti um Bolton." Fyrir í herbúðum Bolton er framherjinn Heiðar Helguson og Grétar segir að það hafi líka greitt leið sína til Englands. "Ég talaði við Heiðar í síðustu viku og hann sagði mér að ég væri galinn ef ég kæmi ekki. Ég var þegar búinn að gera upp hug minn og sagði forráðamönnum Alkmaar að þetta væri rétta tækifærið fyrir mig," sagði Grétar.
Enski boltinn Mest lesið Hausverkur fyrir Iraola Enski boltinn „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport Uppgjörið: KA - Þór 0-0 | Steindauður norðanslagur Íslenski boltinn Bjóða hverjum sem vinnur Littler 84 milljónir Sport Mbappé sár eftir HM Fótbolti Rosenborgarar Freys óstöðvandi Fótbolti „Góðir tímar framundan“ Íslenski boltinn „Hefði nú verið betra að vera með tvo sigra“ Íslenski boltinn „Þetta eru fagmenn sem lifa fyrir boltann“ Íslenski boltinn Úrslitaleikurinn á HM reyndist síðasti leikurinn á ferlinum Fótbolti Fleiri fréttir Hausverkur fyrir Iraola Alonso vill tvo hálffertuga í liðið Segir að Defoe hafi skrópað á æfingu í fyrsta stjórastarfinu Chiesa elskar Liverpool og vonast eftir „nýju upphafi“ Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Sjá meira