Óbreyttir stýrivextir hjá Evrópska seðlabankanum 10. janúar 2008 13:09 MYND/AP
Evrópski seðlabankinn ákvað í dag að halda stýrivöxtum sínum óbreyttum en þeir eru nú fjögur prósent. Það er samræmi við spá greiningaraðila en um helmingur þeirra telur að þeir verði óbreyttir út árið. Vaxandi áhyggjur eru af verðbólgu innan evrusvæðisins þrátt fyrir að útlit sé fyrir minnkandi hagvöxt. Bent er á í frétt Reuters að ýmsir aðrir seðlabankar hafi þegar lækkað stýrivexti þar sem þeir hafi áhyggjur af því að órói á markaði og minnkandi hagvöxtur í Bandaríkjunum geti leitt til enn meiri niðursveiflu en búist hafði verið við. Seðlabanki Bandaríkjanna og Kanadabanki hafa þegar lækkað stýrivexti og búist er við því að Englandsbanki lækki vexti á næstu mánuðum þrátt fyrir að þeim hafi verið haldið óbreyttum samkvæmt ákvörðun bankans í dag. Hins vegar hafa hagfræðingar bent að erfitt geti reynst fyrir Evrópska seðlabankann að lækka vexti þar sem verðbólga á evrisvæðinu hafi verið 3,1 prósent í desember sem er mesta verðbólga þar í rúm sex ár.
Mest lesið Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Viðskipti innlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira