Skelfilegur varnarleikur banabiti Tottenham 1. janúar 2008 19:25 Tottenham fékk á sig Skandinavíutvennu úr föstum leikatriðum í kvöld NordicPhotos/GettyImages
Danski varnarmaðurinn Martin Laursen skoraði sigurmark Aston Villa í 2-1 sigri liðsins á Tottenham í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Enn og aftur varð glórulaus varnarleikur Lundúnaliðsins því að falli. Það var Svíinn Olof Mellberg sem kom Villa yfir á heimavelli þegar hann skallaði aukaspyrnu Ashley Young óáreittur í mark gestanna eftir 40 mínútna leik. Tottenham liðið hefur ekki verið í vandræðum með að skora á leiktíðinni og komst aftur inn í leikinn á 79. mínútu þegar Jermain Defoe jafnaði leikinn. Hann var í byrjunarliði Tottenham í stað Robbie Keane sem var hvíldur. Það var hinsvegar Laursen sem tryggði Villa sigurinn með marki um sex mínútum fyrir leikslok þegar hann skallaði hornspyrnu Gareth Barry í netið einn á auðum sjó eftir að hafa hrist unglinginn Jamie O´Hara af sér í teignum. Sigur Aston Villa var fyllilega verðskuldaður og nú er liðið taplaust í fimm leikjum. Segja má að Laursen hafi skuldað stjóra sínum Martin O´Neill sigurmarkið, því hann skaut boltanum himinhátt yfir mark Tottenham úr sannkölluðu dauðafæri fyrir opnu marki á 24. mínútu og það var ekki eina dauðafæri Villa manna í dag. Tottenham hefur verið að rétta hægt og bítandi úr kútnum undir stjórn Juande Ramos, en þeim spænska hefur þó ekki tekist að kenna slökum varnarmönnum liðsins að verjast föstum leikatriðum frekar en forvera hans Martin Jol enda fær liðið á sig slík mörk í nánast hverjum einasta leik. Það verður forvitnilegt að sjá hvað Ramos og félagar gera á leikmannamarkaðnum í janúar, því lið Tottenham á einfaldlega ekkert erindi í efri helming deildarinnar með óbreyttu varnarfyrirkomulagi.
Enski boltinn Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira