Naumur sigur hjá United 1. janúar 2008 17:00 Carlos Tevez bauð upp á snuddufagn eftir að Ronaldo lagði mark hans upp með laglegum hætti NordicPhotos/GettyImages
Staðan á toppi ensku úrvalsdeildarinnar breyttist ekki í dag þegar toppliðin þrjú unnu leiki sína. Þau voru þó ekki öll jafn sannfærandi. Arsenal vann nokkuð öruggan sigur á grönnum sínum í West Ham þar sem mörk þeirra Eduardo og Adebayor í fyrri hálfleik tryggðu sigurinn. Arsenal hefur því enn tveggja stiga forystu á toppi deildarinnar. Freddie Ljungberg var í byrjunarliði West Ham gegn sínum gömlu félögum, en var borinn meiddur af velli á 37. mínútu. Manchester United vann 1-0 sigur á Birmingham á heimavelli með marki frá Carlos Tevez, en ekki er hægt að segja að sigurinn hafi verið sérlega glæsilegur. Birmingham sótti hart að marki United undir lokin en varð að sætta sig við tap. Reading þurfti að sætta sig við 2-0 tap gegn Portsmouth á heimavelli eftir að hafa spilað með 10 menn frá fjórðu mínútu. Ibrahima Sonko var rekinn af velli fyrir að brjóta á Benjani, en Niko Kranjcar náði ekki að skora úr vítaspyrnunni sem dæmd var í kjölfarið. Varnarmaðurinn Sol Campbell kom Portsmouth skoraði fyrsta mark leiksins eftir skelfileg mistök frá Marcus Hahnemann í marki Reading og það var svo John Utaka sem tryggði gestunum enn einn útisigurinn með marki á 66. mínútu. Miðverðirnir Ívar Ingimarsson og Hermann Hreiðarsson stóðu vaktina hjá liðunum í dag og spiluðu allar 90 mínúturnar. Loks vann Everton 2-0 útisigur á Middlesbrough þar sem Andy Johnson og James McFadden gerðu út um leikinn á fimm mínútna kafla um miðbik síðari hálfleiksins. Everton hefur aðeins tapað tveimur af síðustu 17 leikjum sínum en Middlesbrough heldur áfram að valda vonbrigðum á heimavelli sínum.
Enski boltinn Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Man. United – Roma | Róm var ekki byggð á einni nóttu Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjá meira