Viðskipti innlent

Ernst & Young taki við Glitni

Eins og greint var frá fyrr í dag hefur endurskoðunarfyrirtækið KPMG sagt sig frá úttekt á framkvæmd reglna um innra eftirlit í tengslum við yfirtöku ríkisins á Glitni. Í tilkynningu frá skilanefnd Glitnis banka hf., segir að tekin hafi verið ákvörðun, í samráði við Fjármálaeftirlitið, um að taka upp viðræður við endurskoðunarfyrirtækið Ernst & Young hf. um að þeir taki verkið yfir og ljúki því eins fljótt og verða má.

„Stefnt er að ljúka samningum þar að lútandi í dag eða á morgun," segir einnig í tilkynningunni.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×