Viðskipti erlent

Framleiða færri Hyundai bifreiðar vegna samdráttar

Framleiðandi Hyundai bifreiðanna hefur ákveðið að lækka sölumarkmið sitt fyrir heimamarkað um 6%, en hækkandi olíuverð og samdráttur í efnahagslífinu hefur minnkað eftirspurn eftir bifreiðum.

Hyundai stefnir á að selja 630 þúsund bifreiðar, þar á meðal Sonata og Santa Fe jeppling, á heimamarkaði á þessu ári, en upphaflegt markmið var 670 þúsund bifreiðar, eftir því sem fram kom í tilkynningu frá framleiðandanum í dag.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×