Viðskipti innlent

Krónan á flot í bönkunum

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Krónan fer á flot í dag þegar hér hefst millibankamarkaður með hana á ný, samkvæmt nýjum reglum Seðlabanka Íslands um gjaldeyrismarkað.

„Áhersla verður lögð á að skapa eins virkan markað og eðlilega verðmyndun og kostur er. Til þess þarf góða umgjörð og gagnsæ viðskipti,“ segir í tilkynningu sem Seðlabankinn sendi frá sér síðdegis í gær.

Í fyrstu sinna nýju viðskiptabankarnir þrír, Landsbanki, Glitnir og Kaupþing hlutverki viðskiptavaka með gjaldeyri, en Seðlabankinn væntir þess að fleiri bætist svo við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×