Viðskipti innlent

Forstjóri Össurar maður ársins

Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson
Hlutskarpastur í kjöri um mann ársins í viðskiptalífinu 2008 er Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar. Viðskipti ársins eru kaup Marel Food Systems á Stork Food Systems í Hollandi. Tilnefningar í kjörinu komu frá völdum hópi sem í voru fulltrúar greiningardeilda banka, háskólafólk, sjálfstæðir sérfræðingar og fjölmiðlafólk.

Þá voru einnig tilnefnd verstu viðskipti ársins og er jafnframt fjallað um þau í Markaðnum sem fylgir Fréttablaðinu í dag. Áramótablað Markaðarins er í stærra broti en venjan er, enda af nógu að taka í yfirliti um hræringar í viðskiptalífinu á árinu.

Markaðurinn átti upphaflega að koma út í gær en vegna tæknilegra örðugleika var útgáfunni frestað um einn dag.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×