Grunsamlegar millifærslur 27. desember 2008 18:30
Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra skoðar nú millifærslur upp á samtals hundrað milljarða króna frá Kaupþingi á Íslandi inn á erlenda bankareikninga. Grunur leikur á að stjórnendur bankans hafi fært vildarviðskiptavinum stórar fjárhæðir á silfurfati. Samkvæmt heimildum fréttastofu barst Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra ábending þess efnis fyrir um hálfum mánuði. Ábendingin var það vel ígrunduð að ástæða þótti til að skoða málið nánar. Um er að ræða margar millifærslur upp á samtal hundrað milljarða frá Kaupþingi hér á landi til annnarra landa, aðallega Lúxemborgar. Í ábendingunni kemur fram að tildrög þessara millifærslna séu samningar sem gerðir voru við stærstu viðskiptavini bankans. Í samningunum, sem voru að mestu gjaldeyrisskiptasamningar, hafi falist ákvæði sem voru til þess fallin að skila viðskiptavinunum töluverðum ávinningi. Viðskiptavinirnir hafi því ekki getað annað en hagnast á samningunum. Efnahagsbrotadeild hefur beðið Fjármálaeftirlitið um nánari upplýsingar varðandi þessa samninga. Þá hefur fréttastofa einnig heimildir fyrir því að þetta sé meðal annars ástæða þess að Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, hafi lagt ríka áherslu á að stjórnvöld í Lúxemborg veiti þeim sem hafa með rannsókn á falli íslensku bankanna að gera nauðsynlegan aðgang að gögnum í dótturfélögum íslensku bankanna. Björgvin sagði í fréttum okkar í síðustu viku að verði Kaupþing í Lúxemborg seldur muni verða sérstakt ákvæði í samningnum um að aðgengi íslenskra stjórnvalda að upplýsingum í bankanum verði óskert frá því sem nú er. Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, sagðist í samtali við fréttastofu ekki vilja tjá sig um einstök mál sem eru til skoðunar. Ekki náðist í Sigurð Einarsson, fyrrverandi stjórnarformann bankans.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira