Raungengi krónunnar í sögulegum lægðum 8. desember 2008 11:26
Raungengi krónu náði sögulegum lægðum í nóvember og var það ríflega fimmtungi lægra en þegar krónan stóð sem veikust í árslok 2001. Verðlag hérlendis er þannig orðið afar lágt miðað við helstu viðskiptaþjóðir okkar, og það sama gildir um kaupmátt Íslendinga erlendis. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Glitnis. Þar er sagt frá því að Seðlabankinn birti nýverið útreikninga sína á raungengi og kemur þar fram að raungengið lækkaði í nóvember um ríflega 10%, ef miðað er við hlutfallslegt verðlag. Hefur raungengi krónu þá lækkað um ríflega 40% frá síðustu áramótum á þennan kvarða. Gengi krónu, miðað við gengisvísitölu, hefur raunar lækkað um rúm 48% á þessu tímabili en á móti vegur að verðbólga hefur verið umtalsvert meiri hér á landi en í viðskiptalöndum okkar. Þetta afar lága raungengi er til marks um hversu langt nafngengi krónu er undir jafnvægi. Þótt krónan hafi sótt verulega í sig veðrið frá því hún var sett á skilyrt flot fyrir þremur dögum síðan er gengi hennar enn talsvert undir því jafnvægisgengi sem stuðlar að ytra sem innra jafnvægi í hagkerfinu. Til að mynda má ætla að raungengið, miðað við stöðu krónunnar þegar þetta er ritað, sé ríflega 20% undir meðaltali undanfarinna áratuga. Það meðaltal endurspeglar raunar líklega nokkuð of hátt raungengi að jafnaði, sem endurspeglast í því að þrálátur halli hefur verið á utanríkisviðskiptum á undanförnum áratugum. Þrátt fyrir það telur greiningin krónuna enn eiga inni talsverða styrkingu til meðallangs tíma, ef litið er fram hjá þeim tímabundna þrýstingi sem skammtímastöður erlendra fjárfesta í krónum kunna að setja á hana þegar höftum á fjármagnsflutninga verður aflétt.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira