Viðskipti innlent

Gjaldfærðir vextir aukast um 11 milljarða kr. frá fjárlögum

Samkvæmr frumvarpi til fjáraukalaga er gert ráð fyrir að gjaldfærðir vextir af skuldum ríkissjóðs hækki um rétt tæpa 11 milljarða kr. frá fjárlögum 2008 en að gjaldfærðir vextir hækki um tæpa 7,5 milljarða kr..

Hækkunin skýrist að mestu af aukinni útgáfu ríkisbréfa og auknum lántökum erlendis vegna sértækra aðgerða sem ákveðið var að fara í s.l. vor. Ætlunin þá var að styðja við vaxtamyndun á fjármagnsmarkaði og strykja gjaldeyrisvaraforða Seðlabankans.

Þá hækkar vaxtakostnaður erlendra lána m.a. vegna þróunnar á gengi krónunnar.

Á móti auknum vaxtakostnaði vegna fyrrgreindra aðgerða koma auknar vaxtatekjur af innistæðum í Seðlabankanum, endurlánum og innlendum gjaldeyrisreikningum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×