Enski boltinn

Keane hefði komið Sunderland í gang á ný

Framherjinn Dwight Yorke hjá Sunderland segist hafa verið bæði steinhissa og sorgmæddur þegar hann frétti að Roy Keane hefði sagt af sér hjá félaginu á dögunum.

"Mér brá mikið og ég varð dapur. Það var Roy sem fékk mig hingað og ég væri ekki að spila í ensku úrvalsdeildinni ef ekki væri fyrir hann. Ég trúi því að hann hefði getað komið liðinu á beinu brautina á ný, en hann tók þessa ákvörðun sjálfur," sagði hinn 37 ára gamli Yorke.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×