GOG hefur líka áhuga á Rúnari Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. desember 2008 14:53 Rúnar við verðlaunaafhendinguna í dag. Mynd/E. Stefán
Danska úrvalsdeildarfélagið GOG Svendborg hefur áhuga að fá Rúnar Kárason í sínar raðir, rétt eins og FC Kaupmannahöfn og Füchse Berlin. „GOG hefur sýnt mér áhuga og vilja fá mig til að vera með Ásgeiri (Erni Hallgrímssyni, leikmanni GOG)," sagði Rúnar í samtali við Vísi í dag. Annað stórlið í danska handboltanum, FC Kaupmannahöfn, hefur einnig sýnt Rúnari áhuga sem og þýska úrvalsdeildarliðið Füchse Berlin. „Mér finnst allir þrír kostir mjög spennandi. Þetta eru félög með háleit markmið og það er mikil hefð í báðum dönsku klúbbunum. Á móti kemur að Berlin er með mjög athyglisverða stefnu fyrir næstu fimm árum og Dagur er mjög metnaðarfullur þjálfari." „Ég var einmitt á fundi með Degi í morgun og mér finnst framtíðaráætlanir hans og félagsins mjög spennandi. Þeir ætla sér að koma liðinu úr miðri deild á toppinn sem samræmist mínum markmiðum sem ég hef sem leikmaður." Dagur Sigurðsson var í vikunni ráðinn þjálfari Füchse Berlin sem hefur þegar gert Rúnari tilboð. Rúnar er hins vegar enn að bíða eftir tilboðum dönsku félaganna en á von á þeim fljótlega. „Það er alveg ljóst að ég mun fara út næsta sumar. Ég er samningsbundinn Fram til 2011 en ég hef þjónað félaginu vel og á ekki von á að það verði vandamál. Fram mun vitanlega fá eitthvað fyrir sinn snúð líka." „En ég á erfitt með að ákveða mig eins og er. Ég mun klára mín stúdentspróf í næstu viku en eftir það mun ég vonandi taka ákvörðun." Rúnar var í dag valinn í úrvalslið N1-deildar karla fyrir fyrstu sjö umferðir mótsins. Fram er sem stendur í fjórða sæti deildarinnar með tíu stig, þremur stigum á eftir toppliði Vals en þessi tvö lið mætast einmitt í Safamýrinni á morgun. „Þetta er búið að vera fínt tímabil hjá okkur. Við höfum þó átt góða og slæma leiki í bland en ef við getum rétt okkur af erum við í góðum málum. Ef við vinnum Val á morgun verðum við í góðri stöðu." „Þessi deild hefur spilast þannig að allir eru að stela stig af öllum. Það hefur líka verið frábær stemning á leikjunum og umgjörðin mjög góð. Það er greinilegt að gott gengi landsliðsins á Ólympíuleikunum hafði góð áhrif á deildina."
Mest lesið Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Fótbolti Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Fótbolti Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Íslenski boltinn „Ég er svo lélegur í golfi“ Golf McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fótbolti Fleiri fréttir Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Sjá meira