Upplýsingar um greiðslur til Íslands þegar þær fara um SÍ 17. nóvember 2008 17:21 Seðlabankinn.
Seðlabanki Íslands vill að gefnu tilefna útskýra hvernig greiðslur á milli landa eigi sér stað í þeim tilvikum þegar þær fara um Seðlabankann. Tekið er dæmi af greiðslum frá Bretlandi til Íslands en útskýringin á við um hvaða mynt sem er og jafnt um greiðslur til og frá Íslandi. ,,Að tala um að greiðsla í erlendri mynt sé send til Íslands er að vissu leyti villandi. Greiðslur í GBP fara í raun aldrei út úr greiðslukerfum Bretlands. Sama á við um DKK og Danmörku, EUR og Evrulönd og svo framvegis. Það sem gerist er að greiðslan er lögð inn á reikning íslensks banka í breskum banka í Lundúnum. Á grundvelli upplýsinga um þessa innlögn greiðir íslenski bankinn endanlegum móttakanda. Í dag fer þetta þannig fram að greiðslan er lögð inn á reikning Seðlabankans hjá National Westminster Bank. Þegar Seðlabankinn fær upplýsingar um greiðsluna, greiðir hann viðskiptabanka móttakandans og sendir upplýsingarnar áfram til hans. Viðskiptabankinn greiðir síðan endanlega inn á reikning móttakanda. Þar sem Seðlabankinn er aukamilliliður í þessu tilviki getur reynst snúið að framkvæma greiðslur til Íslands í gegnum netbanka og höfum við nokkur dæmi þess að þetta hafi valdið vandkvæðum og seinkum greiðslna. Við mælum því eindregið með því að ef einhver vafi leikur á um hvernig fylla á út umsókn á netinu þá hafi greiðandinn frekar beint samband við sinn banka og óski eftir millifærslunni á gamla mátann. Það hefur brugðið við að greiðslur eru lagðar inn á reikninga Seðlabankans, en Seðlabankinn ekki fengið neinar upplýsingar um greiðsluna aðrar en fjárhæðina á daglegum yfirlitum. Þetta hefur orðið til þess að tefja afgreiðslu. Til að auka líkurnar á því að Seðlabankinn fái tímanlegar og réttar upplýsingar er best að greiðandinn biðji sinn banka um að greiðslan sé send sem „International Customer Transfer", og að Seðlabankinn fái sent svo kallað SWIFT MT103-skeyti. Ef það er gert er tryggt að hægt verði að afgreiða til viðskiptabankans sama dag og Seðlabankinn fær greiðsluna," segir í tilkynningu frá Seðlabankanum.
Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Sjá meira