Bankastjórar gömlu bankanna taparar ársins? 27. desember 2008 12:11
Sneyptir bankastjórar gömlu íslensku bankanna eru í stórum hópi manna sem tilnefndur hefur verið til verðlauna sem taparar ársins, samkvæmt frétt í viðskiptablaðinu Financial Times. Í grein Financial Times um þá sem gætu verið útnefndir yfirborgaðir forstjórar ársins, segir að allir forráðamenn íslensku bankanna komi til greina. Þeir hafi ekki einungs sett fyrirtæki sín eftirminnilega á hausinn, heldur komist nálægt því að setja alla íslensku þjóðina á vonarvöl. Hins vegar séu þessir snillingar langt í frá þeir einu sem eigi skilið að fá þennan titil, af nógu sé að taka í úrvali ofborgaðra forstjóra sem komu heiminum í þá úlfakreppu sem nú ríkir eftir fall fjármálaheimsins. Þar hafi margir gert í brækurnar. Sir Fred Goowin sem var rekinn frá Konunglega Skotlandsbankanum er talinn líklegur til sigurs sem tapari ársins, en hann hafði litlar eitt þúsund og fimm hundruð milljónir í tekjur á árunum 2006 og 2007, en tókst að gera bankann sinn að littlu sem engu. En bæði Sir Fred og íslensku bankastjórarnir fölna í samanburði við þá sem skitu hvað mest í hreiðrið sitt í bandarískum fjármálastofnunum, að mati the Financial Times. Þar er maður að nafni Daniel Mudd, sem hafði litla 2,9 milljarða króna í árslaun hjá Fannie Mae, Dick Syron sló hann út með litla 4,1 milljarða í árslaun hjá Freddie mack, en báðar þessar fjármálastofnanir fóru eftirminnilega á hausinn með slíku brambolti að heimurinn hefur ekki jafnað sig á eftir.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira