Enski boltinn

Skjelbred í enska boltann?

Elvar Geir Magnússon skrifar

Per Cikijan Skjelbred, leikmaður Rosenborg í Noregi, er á óskalista liða í ensku úrvalsdeildinni. Þetta staðfesti umboðsmaður hans í dag.

Enskir fjölmiðlar greina frá því að Newcastle hafi þegar sett sig í samband við Rosenborg og vilji fá Skjelbred í janúar. Þá er talið að Bolton, Blackburn, Hull, Tottenham og Aston Villa hafi einnig áhuga á þessum 21. árs leikmanni.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×