Dögg vann í héraðsdómi Breki Logason skrifar 18. janúar 2008 14:30 Dögg Pálsdóttir
Dómur hefur verið kveðinn upp í máli Saga Capital gegn Insolidum, fyrirtæki í eigu Daggar Pálsdóttur lögfræðings og varaþingmanns. Kröfu gerðarbeiðanda var hafnað. Saga Capital gerði kröfu um að fyrirtækið fengi öll umráð yfir Insolidum en dómari féllst ekki á þá kröfu og var málskostnaður felldur niður. Lögfræðingur Insolidum sagði í samtali við Vísi að hann hefði allt eins búist við þessari niðurstöðu. „En þetta var ekki einfalt mál og ýmis sjónarmið komu til álita.“ Saga Capital hefur nú tvær vikur til þess að áfrýja málinu til Hæstaréttar og telur lögfræðingur Insolidum ekki ólíklegt að sú verði raunin. Saga Capital stefndi fyrirtæki Daggar Pálsdóttur og sonar hennar Ágústar Páls Ólafssonar, Insolidum, þar sem þau höfðu ekki svarað veðkalli. Insolidum keypti stofnfjárbréf í Spron í gegnum Saga Capital í júlí á seinasta ári. Bréfin keyptu þau fyrir tæpar 600 milljónir og Saga Capital fjármagnaði 320 milljónir af því. Eftir að gengi bréfanna í Spron féllu mikið á fyrstu mánuðum Spron á markaði fór Saga Capital fram á svokallað veðkall. Vildi bankinn þá fá aukið tryggingafé vegna bréfanna. Í kjölfarið af því rifti Insolidum samningum við bankann á þeim forsendum að reglur hefðu verið brotnar í viðskiptum með bréfin. Saga Capital fór því fram á að fá öll hlutabréf í fyrirtækinu og yrði þar með réttmætur eigandi fyrirtækisins. Um það snérist dómsmálið sem nú er komin niðurstaða í. Í vörn Daggar og sonar hennar kom fram að innri verklagsreglur bankans hefðu verið brotnar í viðskiptum með bréfin. Saga Capital hefði ekki tilkynnti að bréfin kæmu úr eigin eignasafni en samkvæmt verklagsreglum bankans ber þeim að tilkynna ef salan er úr eigin eignasafni. Insolidum fór því fram á það í vörn sinni að viðskipti bankans og Insolidum yrðu dregin tilbaka eins og kveður á um í verklagsreglunum. Saga Capital sagði hinsvegar að Insolidum hefði ekki orðið fyrir tjóni vegna þessa og því gengju kaupin ekki tilbaka. Skýrt væri í reglum bankans að viðskiptin gengju ekki til baka nema viðskiptavinur bankans yrði fyrir tjóni. Insolidum hélt því einnig fram að umrædd bréf kæmu frá Gunnari Gíslasyni aðaleiganda Sundagarða hf sem einnig situr í stjórn Spron. Gunnar er einnig einn af eigendum Saga Capital. Héldu þau því fram að Gunnar hefði búið yfir innherjaupplýsingum áður en hann seldi hluta af stofnfjárbréfum sínum. Meðal annars hefði hann séð verðmat sem Capacent vann fyrir Spron áður en bankinn var settur á markað. Hinsvegar var bent á það að verðmatið hefði verið í umræðu í öllum helstu fjölmiðlum landsins áður en Gunnar seldi bréfin sín og því hafi verðmatið verið öllum aðgengilegt.
Mest lesið Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Neytendur „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ Viðskipti innlent Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Hreiðar Már og Kristján Ara sleppa líklega undan ábyrgð Viðskipti innlent Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Persónuvernd sektar Creditinfo um 37 milljónir Viðskipti innlent Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Fleiri fréttir Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Sjá meira