Nova kærir Símann til Samkeppnisráðs 18. janúar 2008 22:35 Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri Nova, telur að Símanum sé ógnað af komu Nova inn á markaðinn og beiti þess vegna markaðsráðandi stöðu sinni.
Nova ehf. hefur lagt fram kæru til Samkeppniseftirlitsins á hendur Símanum hf. fyrir ólögmæta misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Tilefni kærunnar, sem byggir á 11.grein samkeppnislaga um bann við samkeppnishömlum, er hækkun Símans á verði á símtölum frá viðskiptavinum Símans í farsímakerfi Nova. Telur Nova að með því að hækka verð á símtölum til eins samkeppnisaðila brjóti Síminn samkeppnislög. Verðhækkun Símans sem vísað er til í kærunni tók gildi 15. desember 2007 en Nova kom inn á íslenskan farsímamarkað tveimur vikum fyrr, þann 1. desember 2007. Telja forsvarsmenn Nova augljóst að áðurnefnd verðhækkun Símans, sem eingöngu snýr að símtölum í kerfi Nova en ekki annarra fyrirtækja, hafi verið gerð í því skyni að hindra samkeppni. „Síminn telur sér augljóslega ógnað með innkomu Nova á markað og beitir markaðsráðandi stöðu sinni á ólögmætan hátt til að hindra nýja samkeppni. Farsímamarkaðurinn á Íslandi hefur einkennst af stöðnun og hárri verðlagninu en innkoma Nova er nú þegar farin að hafa áhrif," segir Liv Bergþórsdóttir framkvæmdastjóri Nova. Nova telur brot Símans sérlega alvarlegt, ekki síst í ljósi þess að þegar Síminn tilkynnti um verðhækkun sína í farsímakerfi Nova þá lét Síminn í veðri vaka, í fréttatilkynningu sem send var fjölmiðlum, að Nova ráði þeirri verðlagningu. Nova telur ástæðu til að árétta að Síminn ákvarðar sína verðlagningu og getur ekki skýlt sér á bak við samkeppnisaðila þegar fyrirtækið ákveður að hækka verð til eigin viðskiptavina og mismuna aðilum á markaði. Nova hyggst stórauka samkeppni á farsímamarkaði og býður þjónustu og farsíma á lægra verði. Öll símtöl úr farsímum Nova innanlands kosta 15 krónur á mínútu, sama hvert hringt er.
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira