Erfiðara að vera landsliðsþjálfari en forsætisráðherra 18. janúar 2008 10:40 NordicPhotos/GettyImages
Glenn Hoddle, fyrrum landsliðsþjálfari Englendinga í knattspyrnu, öfundar ekki Fabio Capello af því starfi sem hann á fyrir höndum og þá sérstaklega vegna fjölmiðlafársins sem jafnan er í kring um liðið. "Starf landsliðsþjálfara Englands er ómögulegt starf," sagði Hoddle í samtali við Times á Englandi. "Ég held að landsliðsþjálfari Englendinga vinni erfiðara starf en sjálfur forsætisráðherrann. Sérstaklega ef viðkomandi er Englendingur. Eina undantekningin á þessu væri hugsanlega ef forsætisráðherrann þyrfti að fara í stríð og bera ábyrgð á lífum fólks," sagði Hoddle. "Þó þú sért forsætisráðherra, gengur fólk ekki upp að þér og fer að tala við þig um stjórnmál, en ef þú ert landsliðsþjálfari og stoppar til að taka bensín eða færð þér að borða með konunni - hafa allir skoðanir á því sem þú ert að gera og segja þér hvernig þú átt að gera það," sagði Hoddle, sem þekkir þetta af eigin raun. Hann segir Capello geta hagnast á því að tala ekki fullkomna ensku enn sem komið er. "Mér finnast laun landsliðsþjálfarans vera orðin heldur há, en hann á samt að vera á góðum launum af því menn verða fyrir svo miklu áreiti. Það eina sem Capello getur huggað sig við er að hann talar ekki ensku. Þegar ég fór til frakklands sem leikmaður kunni ég ekkert í málinu fyrsta hálfa árið, en það hlífði mér þó við því að lesa einhverja vitleysu um mig í blöðunum því ég skildi ekki málið. Þetta sama á við um Capello og ég myndi skora á hann að opna ekki blöðin nema hann sé að leita að einhverju sérstöku," sagði Hoddle.
Enski boltinn Mest lesið Hausverkur fyrir Iraola Enski boltinn Kallaður fyrir þingnefnd vegna tengslanna við Trump Fótbolti „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Enski boltinn Hræðist ekki sorgarsögu Íslendinga í Króatíu: „Við þurfum bara að skrifa betri sögu“ Fótbolti Finnst illa að Argentínu vegið: „Enginn fótur fyrir þessu hatri“ Fótbolti Bjóða hverjum sem vinnur Littler 84 milljónir Sport Mbappé sár eftir HM Fótbolti Rosenborgarar Freys óstöðvandi Fótbolti „Þetta eru fagmenn sem lifa fyrir boltann“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Hausverkur fyrir Iraola Alonso vill tvo hálffertuga í liðið Segir að Defoe hafi skrópað á æfingu í fyrsta stjórastarfinu Chiesa elskar Liverpool og vonast eftir „nýju upphafi“ Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Sjá meira