800 sóttu um en 22 fengu flugliðastarf 22. apríl 2008 12:32 Það var glatt á hjalla hjá nýútskrifuðum flugliðum Iceland Express við útskriftina sl. föstudag.
Iceland Express útskrifaði sl. föstudag 22 flugliða sem stundað hafa stíft nýliðanám hjá félaginu síðustu mánuði. Þeir hefja störf í háloftunum fyrir Iceland Express um miðjan maí þegar sumaráætlun félagsins hefst. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu. „Margir voru kallaðir en fáir útvaldir að þessu sinni, því að um það bil 800 umsóknir bárust þegar auglýst var eftir nýliðum í vetur en einungis 22 nýjar stöður voru lausar. Því er óhætt að segja að einungis þeir allra bestu hafi komist í gegnum nálaraugað hjá Iceland Express og munu farþegar félagsins án efa njóta góðs af því í sumar. Nýliðanámið hjá Iceland Express er umfangsmikið enda þurfa flugliðar að geta brugðist við ýmsum aðstæðum sem upp geta komið í háloftunum. Mesta áherslan er lögð á þætti sem tengjast öryggi um borð, notkun öryggisbúnaðar flugvélanna, skyndihjálp og þar fram eftir götunum. Jafnframt á Iceland Express í góðu samstarfi við sérsveit Ríkislögreglustjóra sem þjálfar flugliðana í að afstýra mögulegum vandræðum í flugi. Einnig er farið vandlega í allt sem tengist hefðbundnari þjónustu og umönnun farþega. Dúxinn í flugliðanáminu að þessu sinni var Þorleifur Thorlacius en þrír piltar og nítján stúlkur útskrifuðust úr flugliðanámi Iceland Express að þessu sinni."
Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira