Ákváðu að bíða áfram átekta 14. desember 2008 09:00 Fjölþátttökutölvuleikurinn Eve Online hefur notið mikilla vinsælda frá því að CCP setti upprunalega útgáfu hans á markaðinn árið 2003.Mynd/CCP
Stjórn tölvufyrirtækisins CCP ræddi um möguleika á flutningi móðurfélags fyrirtækisins frá Íslandi á stjórnarfundi í London á fimmtudag. Til umræðu kom að flytja félagið til Hollands, Bretlands eða Delaware í Bandaríkjunum. Á fundinum var ákveðið að bíða átekta um sinn í þeirri von að gjaldeyrishömlum verði aflétt sem fyrst, segir Vilhjálmur Þorsteinsson, stjórnarformaður félagsins. Vonandi þurfi ekki að koma til þess að ræða þurfi það mál í fullri alvöru. CCP, sem hannaði og rekur tölvuleikinn Eve Online, ætlar að fara í alþjóðlegt hlutafjárútboð á öðrum ársfjórðungi næsta árs. „Við ætlum að halda okkur við það,“ segir Vilhjálmur, en miðað við þau gjaldeyrishöft sem nú eru í gildi virðist það ómögulegt. Vilhjálmur segir að breytist reglurnar ekki þurfi CCP að sækja um undanþágu. Gangi það ekki verði að fara aðrar leiðir. Vilhjálmur segir gjaldeyrishöftin valda CCP miklum erfiðleikum. Seðlabankinn hafi reyndar skýrt reglurnar þannig að bein fjárfesting erlendra aðila í íslenskum fyrirtækjum sé heimil, en viðkomandi geti ekki selt aftur og tekið féð úr landi. Þá séu erlendar lántökur útilokaðar. Hann vonist því til að hömlunum verði aflétt sem fyrst, í síðasta lagi í mars 2009.- bj
Tengdar fréttir Byggja örugglega ekki hótelið Ríki og borg munu örugglega ekki byggja og eiga hótelið sem rísa á við hlið tón-listar- og ráðstefnuhússins við Reykjavíkurhöfn. „Það er mjög æskilegt að við finnum rekstraraðila eða framkvæmdaaðila sem vill byggja hótelið,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson, stjórnarmaður í Austurbakka, félagi sem ríki og borg eiga í sameiningu. 15. desember 2008 04:00 Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira
Byggja örugglega ekki hótelið Ríki og borg munu örugglega ekki byggja og eiga hótelið sem rísa á við hlið tón-listar- og ráðstefnuhússins við Reykjavíkurhöfn. „Það er mjög æskilegt að við finnum rekstraraðila eða framkvæmdaaðila sem vill byggja hótelið,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson, stjórnarmaður í Austurbakka, félagi sem ríki og borg eiga í sameiningu. 15. desember 2008 04:00