Viðskipti innlent

Fasteignaverð fjarri jafnvægi

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Til þess að fasteignaverð nái hér jafnvægi á ný þarf það að lækka um 25 til 30 prósent á næstu þremur árum. Er þá miðað við að laun hækki á sama tíma um 10 til 15 prósent.

Þetta kemur fram í fyrsta hluta úttektar IFS-Greiningar um fasteignir og vænleika þeirra sem fjárfestingarkosts. Þar kemur jafnframt fram að hér hafi fasteignaverð lækkað að raunvirði um 16 prósent síðustu tólf mánuði og að lækkunin hafi ekki verið meiri í yfir 20 ár.

Í fyrra, þegar fasteignaverð var hvað hæst, segir í skýrslunni að það hafi verið ofmetið um 40 til 50 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×