Greining Glitnis segir að krónan sé í rauninni fljótandi. 27. nóvember 2008 11:59
Greining Glitnis segir að krónan sé í rauninni fljótandi. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningarinnar þar sem fjallað er um gjaldeyrismálin og þróunin á þeim markaði frá því að bankarnir hrundu í upphafi október. Viðskipti á millibankamarkaði með gjaldeyri hafa legið niðri frá því í október eða frá bankahruninu. Á millibankamarkaði voru stóru viðskiptabankarnir þrír viðskiptavakar og störfuðu samkvæmt reglum þar að lútandi, en þær varða t.d. verðmyndun og tíðni tilboða. Þar ákvarðaðist gengi krónunnar í því flotgengisfyrirkomulagi sem var fyrir hrunið. Tilboðsmarkaður fyrir gjaldeyri leysti til bráðabirgða millibankamarkaðinn af hólmi og byrjaði sá markaður 15. október síðastliðinn. Höfðu gjaldeyrisviðskipti þá legið niðri meira og minna í þrjár vikur. Á tilboðsmarkaðinum er fleirum heimiluð viðskipti en áður voru á millibankamarkaðinum og í leiðinni eru skyldur þeirra mun minni. Þarna eru nýju bankarnir þrír ásamt nokkrum öðrum fjármálafyrirtækjum, auk Seðlabankans. Fyrirkomulagið á tilboðsmarkaðinum er þannig að daglega er haldið uppboð þar sem gengi krónunnar ræðst af framboði og eftirspurn. Niðurstöður um viðskipti og verð eru birtar á heimasíðu Seðlabankans daglega. Markaðurinn ákvarðar gengi krónu gagnvart evru. Krónan er í raun fljótandi. Kalla má það temprað flot og hefur krónan lækkað talsvert frá því að fyrirkomulagið var tekið upp. Evran hefur þannig farið úr því að vera 150 krónur í að vera 181 króna. Lækkunin þennan tíma nemur ríflega 17%. Gjaldeyrisviðskiptin eru tempruð eða heft. Temprunin er á framboð gjaldeyris á tilboðsmarkaðinum og þá hvaða tilboðum er tekið. Frá upphafi markaðarins hefur einungis fjórum sinnum verið tekið öllum tilboðum. Vegna þess hvað gjaldeyrisviðskipti höfðu legið lengi niðri voru viðskiptin mikil á markaðinum fyrstu dagana. Fremur hefur dregið úr þeim síðan. Fyrstu tvær vikurnar sem markaðurinn starfaði var meðalfjárhæð viðskipta á dag 17,2 milljónir evra en síðustu tvær vikur hefur meðalfjárhæðin verið 4,4 milljónir evra. Gjaldeyrisviðskiptin eru tempruð m.t.t. eðlis þeirra viðskipta sem aðilar að tilboðsmarkaðinum eiga að nýta gjaldeyri í. Seðlabankinn birti síðast opinberlega tilmæli til aðila markaðarins um þetta 10. október síðastliðinn. Varða þau höft á gjaldeyrisviðskipti vegna vöru- og þjónustuviðskipta ástamt höftum á fjármagnsflutninga. Einungis er hér um að ræða tilmæli. Hefur Seðlabankinn slakað nokkuð á þessum tilmælum síðan.
Mest lesið Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Viðskipti innlent Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Viðskipti innlent Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Samstarf Verðmæta samtalið er oft við kaffivélina eða á ganginum Atvinnulíf Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Viðskipti erlent Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Viðskipti innlent Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Viðskipti innlent Sumarfrísdagur númer átta mesta sælan Atvinnulíf Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Milla ætlar í formanninn Efna til útboðs hlutabréfa að virði 125 milljóna dala Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Ekki sést til lands í deilunni sem hefur haft áhrif á yfir sjö þúsund farþega Sigurjón nýr framkvæmdastjóri Mediacom Ógnarlöng stefna Samkeppniseftirlitsins kemst að eftir allt saman Hakkarar geti lesið gögn af læstri tölvu á tíu mínútum án lykilorðs Sýndareftirlit ef fylgjast eigi með skemmtistöðum á skrifstofutíma Tillögur ráðherra sagðar rýra virði bankanna um tugi milljarða Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Sjá meira