Veik króna hefur áhrif á vöruskiptin Óli Kristján Ármannsson skrifar 4. desember 2008 06:00 Lækkandi heimsmarkaðsverð á áli er meðal þeirra þátta sem áhrif hafa á tölur um vöruskipti við útlönd. Fréttablaðið/Vilhelm
Útflutningur dróst saman um fimmtung á milli október og nóvembermánaðar, reiknað á föstu gengi, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Greining Glitnis segir breytinguna aðallega til komna vegna minna útflutningsverðmætis áls og sjávarafurða. Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar fyrir nýliðinn mánuði nam útflutningur 43,2 milljörðum króna og innflutningur 40,8 milljörðum. Vöruskiptin voru því samkvæmt þessu hagstæð um 2,4 milljarða króna. „Vegna mikilla hreyfinga á gengi krónunnar er samanburður á breytingum á milli mánaða erfiður,“ segir á vef Hagstofunnar. „Vísbendingar eru um minna verðmæti útfluttra sjávarafurða og áls en aukið verðmæti innfluttra hrá- og rekstrarvara miðað við október 2008,“ segir þar jafnframt. „Verð á hrávörum hefur farið hríðlækkandi á heimsmarkaði undanfarna mánuði. Til að mynda er verð á áli nú komið undir 1.700 bandaríkjadali tonnið, en var ríflega 3.000 dalir fyrir tonnið um mitt ár. Á móti kemur raunar að bandaríkjadalur hefur styrkst verulega gagnvart ýmsum helstu gjaldmiðlum á þessu tímabili. Verð á sjávarafurðum okkar hefur hins vegar haldist hátt á heimsmarkaði, sem er nokkur bót í máli,“ segir Greining Glitnis og kveður í sjálfu sér ekki koma á óvart að dragi úr vöruskiptaafgangi eftir metafgang í október. „Allar líkur eru hins vegar á að afgangur af vöruskiptum verði talsvert meiri en í nóvember að jafnaði á næstu misserum.“
Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira