Enn samdráttur í verslun 9. desember 2008 11:38
Tæplega níu prósent samdráttur varð á veltu í dagvöruverslun miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta kemur fram í tölum sem Rannsóknasetur verslunarinnar hefur tekið saman. Um er að ræða tölur á föstu verðlagi en miðað við breytilegt verðlag jókst velta dagvöruverslunar um 19,1% miðað við sama mánuð í fyrra. Samdráttur í verslun miðað við sömu mánuði í fyrra hefur nú varað í fjóra mánuði. Talið er líklegt að jólaverslunin muni einnig dragast saman. Dregur aftur úr áfengissölu „Sala á áfengi minnkaði um 15,5% í nóvember miðað við sama mánuð árið áður á föstu verðlagi og um 1,2% á breytilegu verðlagi. Verð á áfengi hækkaði um 16,9% í nóvember síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra samkvæmt verðmælingu Hagstofu Íslands. Miklar sveiflur hafa verið í veltu áfengis á undanförnum mánuðum. Eftir óvenjumikla veltuaukningu í október minnkaði salan aftur í nóvember um 28,5% á föstu verðlagi," segir í tilkynningu frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Minni sala á fötum, skóm og húsgögnum Þá segir að samdráttur hafi einnig orðið í fataverslun miðað við sama mánuð árið á undan. Veltan hafi minnkað um 17,8% á föstu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra og um 1,2% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Verð á fötum hækkaði um 19,8% á einu ári og um 2,5% frá mánuðinum á undan. „Velta skóverslunar minnkaði um 10,3% í nóvember á föstu verðlagi en jókst um 0,4% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Skóverslun hefur ekki verið minni frá því í mars síðastliðnum ef miðað er við fast verðlag. Verð á skóm hefur hækkað um 11,6% á síðastliðnum 12 mánuðum," segir einnig og bætt við að sama eigi við um húsgögnin. „Í nóvember minnkaði velta í húsgagnaverslun um 43,4% á föstu verðlagi miðað við nóvember í fyrra og um 28,6% á breytilegu verðlagi. Þó húsgagnaverslun hafi verið mun minni í nóvember síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra jólkst hún um 21,7% frá mánuðinum á undan. Verð á húsgögnum hefur hækkað um 26,2% á síðastliðnum 12 mánuðum." Spá minni jólaverslun Að mati Rannsóknarseturs verslunarinnar er greinilegt að efnahagssamdráttur og verðhækkanir hafi sett mark á smásöluverslun. „Samdrátturinn bitnar fyrst og fremst á verslun með dýrar og varanlegar neysluvörur, en einnig á verslun sem selur matvörur og aðrar nauðsynjar." Þá segir einnig að meiri samdráttur sé í einkaneyslu nú en um langt árabil. „Kaupmáttur launa var 5,8% minni í október síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Raunlækkun varð í greiðslukortaveltu á tímabilinu janúar til október um 6,1% miðað við sama tímabil í fyrra. Nýskráningar bíla voru 123 í nóvember og hafa ekki verið svo fáar frá því að Hagstofan hóf að birta þær tölur árið 1995. Þannig sjást skýr merki um að einkaneysla hefur dregist saman að undanförnu og líklegt verður að teljast að jólaverslunin verði minni í ár en í fyrra," segir að lokum. Á heimasíðu Rannsóknarsetursins má kynna sér málið nánar.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira