Alfreð hafði betur í stórslagnum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. október 2008 09:15 Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel, segir sínum mönnum til í leiknum. Nordic Photos / Bongarts
Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Kiel unnu frábæran sjö marka sigur á Hamburg í stórslag þýsku úrvalsdeildarinnar um helgina eftir að hafa verið tveimur mörkum undir í hálfleik. Staðan í hálfleik var 14-12, Hamburg í vil en félagið var í haust talið það eina sem ætti raunhæfa möguleika á að valta Kiel úr sessi sem Þýskalandsmeistari. Kiel skellti í lás í vörninni í síðari hálfleik og Thierry Omeyer varði gríðarlega vel í markinu. Hamburg skoraði aðeins átta mörk í síðari hálfleik og lokatölur urðu 29-22. „Við hefðum getað gert betur fyrsta stundarfjórðung leiksins en lentum þá í vandræðum með Johannes Bitter markvörð sem varði vel í markinu. Þar að auki fengum við mörg ódýr mörk á okkur," sagði Alfreð eftir leik. „Í seinni hálfleik var sóknarleikurinn grimmari og leikmenn hreyfðu sig betur. En þó svo að við sáum nokkra tapaða bolta í leiknum er ljóst að þarna áttust við tvö lið í heimsklassa sem léku handbolta í hæsta gæðaflokki. Ég er stoltur af því hvernig strákarnir mínir stóðu sig í seinni hálfleik." Þá gerðu Füchse Berlin og Grosswallstadt jafntefli í gær, 32-32. Einar Hólmgeirsson lék með síðarnefnda liðinu en náði ekki að skora. Lemgo hefur byrjað feykilega vel í deildinni og er í efsta sætinu með Kiel en bæði lið eru með þrettán stig. Hamburg hefur hins vegar byrjað skelfilega og er í ellefta sæti með sex stig. Grosswallstadt er í níunda sætinu með sjö stig.
Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Íslenski boltinn Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Fleiri fréttir Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Sjá meira