Viðskipti innlent

Makaskiptasamningar koma í veg fyrir lækkun íbúðaverðs

Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,3% í nóvember frá fyrri mánuði samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins (FMR). Íbúðaverð hefur nú lækkað um 1,2% frá sama tíma fyrir ári síðan en um 2,7% frá upphafi árs. Makaskiptasamningar koma í veg fyrir meiri lækkun á íbúðaverði.

Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Glitnis. Þar kemur fram að í fyrra hækkaði íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu um 14,5%. Ljóst er að allt ytra umhverfi íbúðamarkaðarins er afar erfitt um þessar mundir og ljóst að frekari lækkanir íbúðaverðs eru framundan.

Mælingar Hagstofunnar á íbúðaverðsþróun eru á sama veg en hún tekur til verðþróunar á íbúðarhúsnæði á landinu öllu. Samkvæmt Hagstofunni hefur íbúðaverð lækkað um 2,7% frá upphafi árs og um 1,9% frá sama tímabili fyrir ári síðan. Yfir síðastliðið ár hækkaði íbúðaverð í landinu öllu um 16%.

Í ljósi þess hversu erfið staðan er á íbúðamarkaði og hefur verið lungann af þessu ári kemur í raun á óvart að nafnverð íbúða hefur ekki lækkað meira en raun er. Gera má ráð fyrir því að aukin tíðni makaskiptasamninga á undanförnum mánuðum gæti spilað hlutverk í þessari þróun.

Með makaskiptasamningi er átt við kaupsamning þar sem hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign en samkvæmt upplýsingum FMR hefur tíðni slíkra samninga í fasteignaviðskiptum stóraukist undanfarna mánuði. Makaskiptasamningar geta haft töluverð áhrif á verðmyndun, en við makaskipti er oft hagur beggja að skrá verð eignar sinnar hærra en ella væri.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×