Viðskipti erlent

Olíutunnan í 126 dali eftir daginn

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Verðið á olíutunnu fór yfir 126 bandaríkjadali á mörkuðum í dag eftir þó nokkrar lækkanir síðustu tveggja vikna. Veikari bandaríkjadalur virðist fylla fjárfesta bjartsýni segja greiningaraðilar.

Hækkunin takmarkast þó af því að minnkandi spurn eftir eldsneyti réttlætir hana tæplega. Verðlækkunin á miðvikudag var allsnörp en þá fór tunnan í 124,44 dali en nú kostar tunnan 15 prósentum minna en þegar hún varð hvað dýrust fyrr í mánuðinum og kostaði þá 147 dali.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×