Gamla Kaupþing fær greiðslustöðvun 24. nóvember 2008 15:26
Héraðsdómur Reykjavíkur veitti Kaupþingi banka hf. heimild til greiðslustöðvunar, í dag 24. nóvember 2008. Að mati skilanefndar bankans var nauðsynlegt að stíga þetta skref til að tryggja jafnræði kröfuhafa í samræmi við íslensk lög og tilskipanir ESB. Í tilkynningu um málið segir að greiðslustöðvunin veiti bankanum nauðsynlega vernd gegn lögsóknum. Á meðan á greiðslustöðvun stendur mun bankinn halda starfsleyfi sínu að því marki sem nauðsynlegt er til að viðhalda verðmæti eigna bankans. Greiðslustöðvunin mun einnig veita Kaupþingi svigrúm til áframhaldandi viðræðna við kröfuhafa, með það að markmiði að hámarka verðmæti eigna fyrir alla hlutaðeigandi. Eins og komið hefur fram hefur verið stofnuð óformleg nefnd kröfuhafa. Með greiðslustöðvuninni er stefnt að því að gera áframhaldandi samstarf við kröfuhafanefndina skilvirkara. Ráðgert er að halda annan fund með nefndinni í desember. Ólafur Garðarsson, hæstaréttarlögmaður, hefur verið ráðinn aðstoðarmaður í greiðslustöðvun. Hann mun starfa með skilanefnd bankans en hún mun, lögum samkvæmt, fara áfram með valdheimildir stjórnar bankans. Markmið hans eru þau sömu og skilanefndar, að varðveita eignir og hámarka greiðslu til lánadrottna. Greiðslustöðvunin er veitt til kl. 14 föstudaginn 13. febrúar 2009. Aðstoðarmanni bankans í greiðslustöðvun er skylt að boða fund með kröfuhöfum, sem haldinn skal eigi síðar en þremur dögum fyrir lok þess tíma. Greiðslustöðvunin getur að hámarki varað í 24 mánuði.
Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Sjá meira