Enski boltinn

Fabregas gerður að fyrirliða Arsenal

NordicPhotos/GettyImages

Arsene Wenger hefur staðfest að hann hafi gert Spánverjann Cesc Fabregas að fyrirliða Arsenal í stað William Gallas.

Miklar vangaveltur höfðu verið uppi um hver tæki við fyrirliðabandinu af Gallas, sem var settur út úr hópnum og sviptur fyrirliðabandinu fyrir að gagnrýna félaga sína harðlega á dögunum.

Fabregas verður fyrirliði Arsenal í fyrsta sinn þegar liðið mætir Dynamo Kiev í Meistaradeildinni annað kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×